13 November 2007

Það gæti ringt á Bonkers þannig að vertu Under my umbrella, ella ella eh eh eh, en ef ekki finndu þér þá bara norðmann

Þá er kominn tími á framhald af ferðasögunni.

Þegar við komumst loks upp og búnar að fá okkur að borða, dýran en góðan mat. Það er greinilegt að það á að féfletta mann alveg þangað til að lent er í öðru landi. Hver króna skiptir máli. Alla vega þá sátum við þarna og létum okkur leiðast, því við vorum jú langt á undan áætlun. Loks var komin tími til að labba að hliðinu, þegar við vorum búnar að sýna vegabréfin og komnar í gegn fattaði ég að síminn minn var ekki í töskunni. Það kom nú frekar mikið fát á mig og ég hljóp til baka. Sem betur fer lá þá litli síminn í sætinu sem ég hafði setið í. Svo þegar ég var að fara til baka hló strákurinn í vegabréfa búrinu að mér. Fannst ég greinilega eitthvað skondin hlaupandi þarna fram og til baka eins og eitthvert sirkusdýr.

Loks vorum við komnar á flug og áttum 5 tíma eftir af flugi. Þá var bara að horfa á leiðinlega mynd, ja eða bara sofna á öxlunum á mér. Ég er svona labbandi koddi, það getur verið gott að vera ég. Meðan við sátum þarna var okkur litið yfir ganginn. Venjulega er það eitthvað sem maður gerir og sér ekkert merkilegt, en það var nú annað núna. Þarna sat þá þessi sæti, sæti strákur. Dökkhærður og flottur. Hann var aðalumræðu efnið á leiðinni, því ekki var myndin góð.
En loks stigum við út úr vélinni, og þvílíkur hiti sem tók á móti okkur, það var dásamlegt. Arna B. hafði orð á því hversu frábært væri að vera komin, en það heyrðist nú ekki alveg því hún húrraðist nærri niður tröppurnar. En er ekki sagt, fall er fararheill. Okkur var síðan keyrt inn í flugstöðina, sem var ábyggilega jafn stór og Reykjavíkurflugvöllur, en það var einhver sem lyktaði mjög illa þarna inni þannig að maður var að halda niðri í sér andanum, sem var klárlega ekki að gera sig í þessum hita. Loks var komið inn og biðin eftir töskunum hófst. Og sú bíð var LÖNG. Við biðum og biðum og dokuðum og dokuðum, en það eina sem við heyrðum var eitthvað hræðilega pirrandi bíbb sem kom alltaf á undan tilkynningunum, sem voru ekki á ensku, þannig að við skildum ekkert hvað var í gangi. Loks komu töskurnar okkar og við gátum farið út, þar var okkur troðið inn í rútu sem keyrði okkur svo á áfangastað. Og þarna sat ég í rútunni, við hliðina á einhverri íslenskri stelpu, ekki vitandi að þetta ætti eftir að verða ein af skemmtilegustu viku lífsins. Stelpurnar sátu og sváfu, enda tekur það á að ferðast, svo þurfti líka að safna kröftum fyrir kvöldið. Eftir klukkutíma ferð vorum við komnar.
Þá var bara að tékka sig inn á hótelið. Við fengum það yndislega herbergi númer ... . Þegar við vorum komnar var skellt sér í rétta dressið fyrir kvöldið, ætluðum að skella okkar að borða og kanna umhverfið.
Það hefur greinilega sést á okkur að við vorum nýkomnar, við vorum hvítar eins og nýfallinn snjór, þá sérstaklega ég, því allir þeir sem vinna við að draga fólk inn á veitinga- og skemmtistaði þurstu að okkur. Allir vildu benda okkur á hve frábært væri á þeirra stöðum. Við hlustuðum af athygli, enda vildum við vita hvar réttu staðirnir væru. Það varð samt frekar leiðinlegt til lengdar því við vorum orðnar mjög svangar. Það var þetta kvöld sem markaði uppaf hefðar sem átti eftir að lita ferð mína, það var að borða bara salat þessa viku. Við höfðum labbað lengi lengi þegar loks við ákváðum að setjast inn á stað sem var með Mikka mús skilti fyrir framan. Við sátum þarna svaka spenntar og hlustuðum á frábæran söng hjá konu einni og hljómsveit hennar, sem saman stóð af einum manni með hljómborð. Á einum tímapunkti var ég að hugsa um að hjálpa konu greyinu því hún mundi ekki einu sinni textann við lögin sem hún var að syngja. En þetta er nú aðeins útúrdúr, því aðal punkturinn í þessari færslu er sá, hversu VIÐBJÓÐSLEGUR maturinn var. Eftir að hafa skálað í innlendan bjór, byrjuðum við að borða. Ég hafði í mesta sakleysi mínu panntað sesar-salat, og þeir sem hafa borðað þannig vita að það er ekki fiskur í því. En þegar diskurinn var settur fyrir framan mig var það eina sem ég sá, og fann lykt af, var fiskur. En hann var nú samt falinn með sítrónu. Þetta er einn sá ógeðslegi matur sem ég hef smakkað. Maturinn hennar Örnu B. var nú aðeins skárri, og þá meina ég aðeins. Hún fékk sér spagetthi bolognes(hvernig sem það er nú skrifað). Hins vegar var Arna A. mjög heppin, hennar Pizza bragðaðist mjög vel, því lík heppni í stelpunni. Það var því þannig og sumar okkar fóru út af staðnum jafn svangar og þær komu inn. Ekki góð meðmæli það.

Meira kemur á morgun, er alveg að sofna :)

6 comments:

Anonymous said...

Hehe snilli :)

Katrín said...

takk takk, er að bæta inn i þetta... var að spá hversu mikið mætti segja ;)

Anonymous said...

hæhæ....hérna, ertu farin að blogga á ensku á gömlu síðunni?

http://gubbytrina.blogspot.com/

Ahh...ég kvíði fyrir miðvikudeginum, hvernig fer maður í munnlegt próf í storkubergi?

Katrín said...

nei ég er ekki að skrifa inn á gömlu síðunni. hélt að hún hefi eyðst, en svo er víst ekki, skrítið... er ekki voða sátt við það.
en því miður get ég ekki útskýrt hvernig maður fer í munnlegt próf í storkubergi. það er ekki alveg það sem ég er að læra þessa dagana ;)

Anonymous said...

When is tomorrow? :(

Katrín said...

þegar prófin eru búin, fyrst að ég var ekki búin að þessu fyrr :(
sorry